Inspired by Iceland
mbl.is - Gegn rasisma og fasisma: Lifandi bókasafn í dag
09.11.2011

Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS standa fyrir lifandi bókasafni í dag á 1. hæð Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15, frá klukkan 16.00-18.00 í tilefni af alþjóðlegum degi gegn rasisma og fasisma.

Gestir geta fengið að láni lifandi og talandi bók frá ýmsum löndum, t.d. Póllandi, Ísrael, Austurríki og Spáni og fræðst um málefnið frá mismunandi hliðum.

Í tilkynningu segir að SEEDS séu íslensk sjálfboðaliðasamtök sem taka á móti hátt í 1000 sjálfboðaliðum á ári til að vinna að umhverfis- og menningartengdum verkefnum hér á landi og stuðla að menningarlegum skilningi og friði. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Í tilefni dagsins verður einnig sett upp skilaboðaspjald þar sem almenningi gefst kostur á að skrifa skilaboð eða hugleiðingar sínar um kynþáttafordóma sem eru í samfélaginu í dag.

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/11/09/gegn_rasisma_og_fasisma_lifandi_bokasafn_i_dag/

mbl.is - Gegn rasisma og fasisma: Lifandi bókasafn í dag
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters