Inspired by Iceland
patreksfjordur.is - Sjóræningja Völundarhús, skynjunarleikhús á Patreksfirði
20.08.2009

Tæplega 30 ungmenni taka nú þátt í listsmiðju í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Það eru TOS ungmennaskipti sem standa að verkefninu, og smiðjan stendur yfir vikuna 17. – 21. ágúst. TOS er hluti af alþjóðlegu neti samtaka sem vinna að samskonar verkefnum víða í Evrópu. Þetta er fyrsta verkefni TOS á Íslandi, en samtökin hafa áður tekið þátt í fjórum fjölþjóðlegum verkefnum á síðasta ári. Að TOS standa systurnar Hólmfríður og Ásta Þórisdætur.

Listsmiðjan hefur yfirskriftina Sjóræningja Völundarhús og er fyrir ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára. Verkefnið felst í að setja upp skynjunarleikhús þar sem unnið er með ýmiskonar skynhrif og tilfinningar, og lýkur vinnunni með sýningu fyrir boðsgesti að kvöldi föstudags kl. 20. Þátttakendur vinna með ýmis listform og blanda saman þáttum úr mismunandi listgreinum, eins og leiklist, myndlist og tónlist . Nemendur í framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði taka þátt auk þess sem fjölþjóðlegur hópur sjálfboðaliða frá SEEDS koma að verkefninu. Sýningin er sett upp í gömlu smiðjunni í Sjóræningjahúsinu þar sem innréttingar og verkfæri eru nýtt sem leikmynd.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.

http://www.patreksfjordur.is/fullfrett.phtml?id=4733&frettaflokkur=forsida

 

patreksfjordur.is - Sjóræningja Völundarhús, skynjunarleikhús á Patreksfirði
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters