Inspired by Iceland
Vísir.is - Unnið við varðveislu hvalstöðvar á Suðureyri...
09.09.2007

Hópur sjálfboðaliða frá alþjóðlegum samtökum ungs fólks sem nefnist SEEDS, SEE beyonD borderS, vinnur nú að varðveislu minja hvalstöðvarinnar á Suðureyri við Tálknafjörð.

Búið er að hreinsa í kringum og innan úr Katlahúsinu og hafið er fyrirbyggjandi viðhald á skorsteininum. Hópurinn er skipaður 13 einstaklingum frá Rússlandi, Englandi, Ítalíu, Spáni, Frakklandi, Þýskalandi og Japan, en þeir sóttu um að komast í verkefnið eftir að það var auglýst á Internetinu. Norðmenn reistu og ráku hvalveiðistöð á Suðureyri um aldamótin 1900, en hættu rekstrinum í fyrri heimstyrjöldinni. Stöðin var starfrækt á ný á árunum 1930-40 en þá af innlendum aðilum. Var hvalstöðin á innanverðri eyrinni og bryggja fram af Eyraroddanum og sjást enn miklar minjar þessara mannvirkja.

http://www.visir.is/article/20070909/FRETTIR0605/309090010&SearchID=7329512237690

Vísir.is - Unnið við varðveislu hvalstöðvar á Suðureyri...
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters