Inspired by Iceland
Morgunblaðið - Skátar hreinsa fjöruna í Viðey
15.06.2007

FYRIR skemmstu fór fram fjöruhreinsun í Viðey. Um var að ræða sameiginlegt átak Reykjavíkurborgar, Viðeyingafélagsins og Skátafélagsins Landnema í Reykjavík.

Fjöruhreinsunin síðasta laugardag var liður í hreinsunarátaki í Viðey, því seinna í sumar stendur til að í Viðey starfi tveir hópar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS en eitt meginverkefni hópanna verður fjöruhreinsun í eyjunni.

Viðeyingafélagið er með félagsheimili sitt í Viðey í gömlum vatnstanki frá tíð "Milljónafélagsins" og hreinsuðu félagsmenn meðal annars húsgrunna og plön gamla þorpsins. Er hreinsunin liður í undirbúningi að Viðeyjarhátíð þann 25. ágúst þar sem minnst verður þess að 100 ár eru liðin frá stofnun "Milljónafélagsins" sem hét réttu nafni P. J. Thorsteinsson & Co. En stofnun félagsins markaði upphafi að byggingu þorpsins í Viðey sem varð miðstöð þessa útgerðarrisa.

Skátafélagið Landnemar í Reykjavík heldur á Jónsmessunni Landnemamót sitt í Viðey og hefur gert í áratugi. Í fjöruhreinsuninni var tekið til handargagns töluvert magn timburs sem notað verður í Sólstöðuvarðeld föstudagskvöldið 22. júní. Varðeldurinn er hluti af Landnemamótinu en almenningi gefst tækifæri á að taka þátt og upplifa sanna skátastemningu í Viðey. Á undan verður þreytt Skúlaskeið, Felix Bergsson leikari skemmtir og öllum verðurboðið í grillveislu. Eftir varðeldinn verður svo miðnætur- og lífsfagnaðarmessa.

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1150600/

Morgunblaðið - Skátar hreinsa fjöruna í Viðey
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters