Inspired by Iceland
BB.is: Sjálfboðaliðar buðu Strandamönnum á stefnumót
23.06.2009

Líf og fjör var á Galdrasafninu á Hólmavík á föstudagskvöld þegar sjálfboðaliðar úr samtökunum Seeds sem hafa verið við störf á Hólmavík buðu Strandamönnum á stefnumót. Sjálfboðaliðarnir koma frá sex löndum og buðu upp á sex sérrétti af ýmsum toga frá sínum heimalöndum. Á móti fengu þeir hákarl og harðfisk, signa grásleppu og sviðalappir. Spurningakeppni var haldin, dansaðir hringdansar og sýndar myndir frá dvölinni og vinnunni. „Ásta Þórisdóttir og Lýður Jónsson fengu sérstakt klapp fyrir frábær samskipti og allir fengu sjálfboðaliðarnir ullarvettlinga með ægishjálmi svo þeim yrði ekki kalt á höndunum úti í hinum stóra heimi. Gleðin var við völd þessa skemmtilegu kvöldstund“, segir á strandir.is.


Smelltu hér til að skoða fréttina á BB.is

BB.is: Sjálfboðaliðar buðu Strandamönnum á stefnumót
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters