Inspired by Iceland
Natturan.is: Okkar græna skref
02.04.2013

Justina Lizikeviciute, umhverfisleiðtogi hjá sjálfboðaliðasamtökum SEEDS, og félagar hennar hrundu af stað skemmtilegu ljósmyndaverkefni á Grænum dögum í Háskóla Íslands á dögunum. Þau báðu nemendur og aðra að setja fram skilaboð „My green step“ eða „Mitt græna skref“ og skrifa þau á töflu.

Þar sem að Justina og félagar hennar komu síðan í kynningu og hugmyndavinnu hér hjá okkur á Náttúran.is vorum við einnig beðin um að segja frá okkar græna skrefi. Nafn fyrirtækisins á ensku er Nature.is Ltd. (Nature.is limited) völdum við því að nefna það sem okkar græna skref enda er vefurinn og tengd verkefni okkar stóra græna skref í lífinu.

Sjá fleiri myndir Justinu á FB síðu SEEDS.

Á ljósmynd: Guðrún A. Tryggvadóttir og Einar Bergmundur. Ljósmyndari: Justina Lizikeviciute.

http://natturan.is/frettir/7573/

Natturan.is: Okkar græna skref
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters