Inspired by Iceland
Visir.is: Heita því að smakka ekki hvalkjöt
08.09.2012

Fulltrúar atvinnuvega-ráðuneytisins tóku á móti sex-tán þúsund póstkortum frá sjálfboðaliðum samtakanna SEEDS. Á þeim voru undirskriftir 15 þúsund ferðamanna sem hétu því að smakka ekki hvalkjöt á meðan á dvöl þeirra hér stæði. Þá höfðu eitt þúsund Íslendingar skrifað nöfn sín á póstkortin.

Sigursteinn Másson, fulltrúi samtakanna, segir að sjálfboðaliðarnir hafi fengið mjög góðar móttökur í sumar. Auk þess að heita því að bragða ekki á kjötinu hvetja þeir sem skrifa undir stjórnvöld til að stöðva veiðar á hval við landið. Sérstaka athygli veki hve margir Íslendingar höfðu frumkvæði að því að skrifa undir póstkortin, þó þau væru í raun fyrst og fremst ætluð ferðamönnum.

Hann segir markmiðið tvíþætt; annars vegar að sýna stjórnvöldum fram á hve umdeildar hvalveiðar eru og að Íslendingum sé í hag að hætta þeim.„Þá vildum við vekja ferðamenn á Íslandi, sem langflestir segjast andvígir hvalveiðum, til vitundar um að með því að smakka hvalkjöt á íslenskum veitingastöðum eru þeir að stuðla að áframhaldandi hvalveiðum.“

http://www.visir.is/heita-thvi-ad-smakka-ekki-hvalkjot/article/2012709089921

Visir.is: Heita því að smakka ekki hvalkjöt
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters