Inspired by Iceland
Fréttablaðið - Í vinnubúðum á fjarlægum slóðum
20.02.2010

1.300 HAFA KOMIÐ HINGAÐ

Meginstarfsemi SEEDS á Íslandi snýst um að taka á móti fólki sem kemur hingað til að vinna en frá árinu 2006 hafa samtökin tekið á móti 1.300 sjálfboðaliðum alls staðar að úr heiminum.

Rétt eins og sjálfboðaliðarnir sem fara héðan til útlanda, vinna þeir sem hingað koma að umhverfis- og menningarmálum og er það leiðarljós samtakanna að stuðla að menningarlegum skilningi í gegnum þá vinnu. Verkefni sem þeir hafa komið að eru meðal annars að hreinsa strandlengjur, gróðursetja tré, leggja og laga göngustíga, viðhalda minjum og fornleifum, mála, ýmis landbúnaðarvinna og að aðstoða við menningarhátíðir á borð við Gay Pride og menningarnótt og þar fram eftir götunum.

Unnið er víðs vegar um landið og eru samtökin í samstarfi við bæjarfélög, önnur samtök og einstaklinga sem vinna að því að fegra og bæta Ísland, viðhalda menningu landsins og minjum. Sjálfboðaliðarnir fá þannig tækifæri til þess að lifa, starfa og kynnast íslenskri menningu, samfélögum og fólki.

Í VINNUBÚÐUM Á FJARLÆGUM SLÓÐUM

Ævintýragjarnir ferðalangar sem hafa áhuga á að leggja sitt að mörkum til umhverfi sins ættu að skoða möguleikana sem félagasamtökin SEEDS hafa að bjóða.

Þeir sem hafa áhuga á að ferðast til fjarlægra landa, læra sitthvað um þjóðina og jafnvel leggja eitthvað af mörkum til hennar líka ættu að velta fyrir sér þeim kosti að fara utan á vegum frjálsu félagasamtakanna SEEDS. Samtökin, sem eru alþjóðleg og starfa um allan heim, eru rekin án hagnaðarsjónarmiða og hafa það hlutverk að stuðla að menningarlegum skilningi í gegnum vinnu tengda umhverfismálum.

Starfsfólk skrifstofunnar hér er þó einnig í því að aðstoða Íslendinga sem vilja fara út til að starfa í vinnubúðum. „Allt eru þetta verkefni sem eru tengd félagslegum þáttum og umhverfinu. Fólk getur verið að gróðursetja tré, hreinsa ákveðin svæði, hlúa að einhverjum minjum eða að kenna börnum á munaðarleysingjaheimilum eða leikskólum. Fólk vinnur í 25 til 30 manna hópum, býr saman, vinnur saman og gerir í raun allt saman. Verkefnin leggja til fæði og húsnæði og fólkið leggur fimm til sex vinnustundir á móti,“ útskýrir Anna   Lúðvíksdóttir, ein þeirra sem starfa á skrifstofu SEEDS á Íslandi. Hún hvetur fólk eindregið til að leita til sín eða samstarfsfólks hennar, því möguleikarnir séu fjölmargir, enda um 100 lönd í boði og þúsundir verkefna.

Nú hugsa ábyggilega margir: „Þetta er nú aldeilis sniðugt en ekki fyrir fjölskyldu eins og okkur“. En þeir geta tekið gleði sína, því mörg verkefnanna eru með fjölskylduvænar vinnubúðir. „Það eru nokkur lönd sem hafa helst verið með slíkar búðir: Ítalía, Eistland, Þýskaland og Georgía sem dæmi. Þær eru þannig gerðar að fólk með börn á sínum snærum, foreldrar eða jafnvel amma og afi, geta komið saman. Þá er boðið upp á verkefni sem börnin geta tekið þátt í, það getur til dæmis verið að taka upp og hreinsa grænmeti. En auðvitað eru börnin ekki látin vinna eins og fullorðna fólkið, svo þá er sérstök skemmtidagskrá í boði fyrir þau.“

Þá eru jafnframt búðir fyrir folk eldra en 30 ára. „Það er gert vegna þess að fólk sem tekur þátt í svona verkefnum er oft í yngri kantinum. Búðirnar fyrir eldra fólkið eru þá hugsaðar fyrir þá sem vilja síður vera í þessum „háskólafílingi“,“ útskýrir Anna. „Þá færðu til dæmis gistiaðstöðu sem er örlítið meira út af fyrir sig og þess háttar.“

Þátttakendur í vinnubúðum SEEDS greiða 10 þúsund krónur í umsýslugjald til íslensku samtakanna og þurfa sjálfir að koma sér á staðinn. Í sumum tilfellum er auka-umsýslugjald, svo sem í fjölskyldubúðunum. Að jafnaði eru vinnubúðirnar um tveggja vikna langar en SEEDS tekur jafnframt þátt í lengri verkefnum sem eru í boði fyrir fólk á aldrinum 18 til 30 ára og eru styrkt að fullu af Evrópusambandinu. Á heimasíðunni www.seedsiceland.org er hægt að nálgast frekari upplýsingar um verkefnin.

Fréttablaðið - Í vinnubúðum á fjarlægum slóðum
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters