Inspired by Iceland
Skessuhorn.is - Lúpínuslætti að ljúka í Stykkishólmi
08.07.2010

Á vef Náttúrustofu Vesturlands kemur fram að aðgerðir gegn ágengum plöntum í Stykkishólmi hafi gengið ágætlega og er lúpínuslætti nú að ljúka.

“Fyrstu yfirferð á skógarkerfil og spánarkerfil er lokið nema í örfáum tilfellum þar sem ekki fékkst leyfi til að fara inn í garða. Sömuleiðis vantar enn leyfi nokkurra garðeigenda til að fjarlægja bjarnarkló og lúpínu,” segir á nsv.is Lúpínuslætti er nú lokið ef frá er talið skógræktarsvæðið við Grensás. Skógræktarfélag Stykkishólms er með ásana í austanverðu bæjarlandinu á leigu frá Stykkishólmsbæ. “Samkomulag um að uppræta lúpínu þar tókst ekki að þessu sinni en verkefnið fær til umráða eina stóra breiðu á því svæði til að framkvæma samanburðartilraun á áhrifum eiturs og sláttar. Sá hluti breiðunnar sem ekki verður nýttur í tilraunina verður sleginn og er gert ráð fyrir að þeim slætti ljúki í vikunni.

Að því loknu snýr hópurinn sér aftur að bjarnarkló og kerflum. Þrír starfsmenn vinna í fullu starfi við aðgerðirnar en auk þeirra eru í Stykkishólmi staddir fimm sjálfboðaliðar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS.”
 

http://www.skessuhorn.is/default.asp?sid_id=24845&tId=99&fre_id=105009&meira=1&Tre_Rod=001|002|&qsr

Skessuhorn.is - Lúpínuslætti að ljúka í Stykkishólmi
Find your workcamp
Icelandic Experience
SEEDS main supporters