SEEDS Umhverfisráðstefna 2010
02.11.2010
Sjálfboðasamtökin SEEDS fagna um þessar mundir fimm ára afmælinu sínu og að því tilefni verður efnt til Umhverfisráðstefnu í samstarfi við Landvernd og Umhverfisstofnun.
Sjálfbærni er eitt mikilvægasta málefni líðandi stundar innan umhverfisgeirans. Sjálfbær þróun og hagræn nýting náttúruauðlinda er okkur nauðsynleg til að tryggja velferð í framtíðinni. Á ráðstefnunni verða tekin dæmi um umhverfisvæn samfélög og þátt alþjóðlegra sjálfboðaliða í umhverfismálum á Íslandi. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar mun opna ráðstefnuna og er heiðursgestur hennar Ómar Ragarsson, fjölmiðlamaður.
Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér:
http://www.seedsiceland.org/seeds-conference-programme.pdf